Á bak við hverja máltíð liggur langt ferli, allt frá ræktun og framleiðslu matvæla, þar til þau rata í verslanir og að lokum á diskinn okkar. Flest okkar hugsum sjaldan um þetta ferli, en hvert skref hefur áhrif á umhverfið, heilsu okkar og samfélagið sem við búum í.
Aukin vitund um þessi tengsl er mikilvægur þáttur í að byggja upp sjálfbærari framtíð. Með fræðslu og upplýsingamiðlun vill EU FOODPACT verkefnið hvetja fólk til að kynna sér þær áskoranir sem matvælakerfi standa frammi fyrir og taka upplýstari og ábyrgari ákvarðanir um framleiðsluferli og neyslu matvæla.
Matvælakerfi og sjálfbærni
Matarsóun er ein stærsta áskorunin sem matvælakerfi Evrópu standa frammi fyrir. Á hverju ári falla til um 58 milljónir tonna af matvælaúrgangi innan Evrópusambandsins, sem jafngildir um 129 kílóum á hvern íbúa. Áætlað markaðsvirði þessara matvæla nemur um 132 milljörðum evra. Á sama tíma hafa 8,5% íbúa Evrópusambandsins ekki efni á næringarríkri máltíð sem inniheldur kjöt, kjúkling, fisk eða sambærilegan grænmetisrétt annan hvern dag (Eurostat, 2025).
Vandinn er þó ekki bundinn við Evrópu. Samkvæmt mati Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) tapast eða fer til spillis um þriðjungur allra matvæla sem framleidd eru til manneldis á heimsvísu. Þar af tapast um 14% matvæla á leiðinni frá uppskeru til smásölu.
Þessar tölur sýna hversu mikilvægt er að bæta nýtingu matvæla, draga úr sóun og stuðla að sjálfbærari framleiðslu og neyslu.
Frá vitundarvakningu til aðgerða
Hvað getum við gert?
Það er sameiginleg ábyrgð okkar allra að koma í veg fyrir matarsóun og draga úr henni. Allir sem koma að matvælakeðjunni hafa hlutverki að gegna, hvort sem það eru bændur, matvælaframleiðendur, verslanir, veitingastaðir eða heimili.
Hvað geta framleiðendur gert?
Bændur og aðrir matvælaframleiðendur geta haft veruleg áhrif með því að skipuleggja framleiðslu í samræmi við eftirspurn og eiga gott samstarf við kaupendur. Þannig má draga úr offramleiðslu og minnka líkur á að matvæli fari til spillis.
Vönduð ferli við uppskeru, rétt meðhöndlun afurða, viðeigandi geymsluaðferðir og kæling hjálpa til við að varðveita gæði matvæla og lengja geymsluþol þeirra. Einnig er mikilvægt að finna markað fyrir matvæli sem uppfylla ekki hefðbundnar útlitskröfur, en eru að öðru leyti fullkomlega æt. Slíkar vörur má til dæmis selja á bændamörkuðum, með beinni sölu frá framleiðendum eða í gegnum áskriftarkerfi fyrir grænmetis- og matarkassa.
Umframframleiðslu má jafnframt nýta með ýmsum hætti. Matvælum sem annars færu til spillis má koma til hjálparsamtaka eða selja til frekari vinnslu, til dæmis í safa, sósur og niðursuðuvörur.
Matvæli sem ekki er lengur hægt að nýta til manneldis geta í sumum tilvikum nýst sem dýrafóður eða til framleiðslu á moltu og lífgasi. Lífgas er endurnýjanlegur orkugjafi sem framleiddur er úr lífrænum úrgangi.
Með þessum aðgerðum má bæta nýtingu auðlinda, draga úr úrgangi og skapa aukin verðmæti innan matvælakeðjunnar.
Hvað geta neytendur gert?
Neytendur gegna ekki síður mikilvægu hlutverki í baráttunni gegn matarsóun. Með einföldum breytingum á daglegum venjum getum við dregið verulega úr því magni matvæla sem fer til spillis.
Að skipuleggja máltíðir, útbúa innkaupalista og geyma matvæli við réttar aðstæður hjálpar okkur að kaupa aðeins það sem við þurfum og nýta betur það sem við eigum.
Einnig er mikilvægt að skilja muninn á dagsetningarmerkingum matvæla. Merkingin „síðasti notkunardagur“ snýr að öryggi matvæla og gefur til kynna hvenær síðast er öruggt að neyta þeirra. Merkingin „best fyrir“ vísar hins vegar til gæða matvæla. Matvæli geta því oft verið fullkomlega neysluhæf eftir þá dagsetningu, svo framarlega sem þau hafa verið geymd við réttar aðstæður og eru enn í góðu ástandi.
Með því að elda hæfilega skammta, nýta afganga í nýjar máltíðir og frysta matvæli áður en þau skemmast má draga verulega úr matarsóun á heimilum. Þá er moltugerð einnig góð leið til að nýta lífrænan úrgang sem ekki verður komist hjá.
Að velja matvæli úr héraði og vörur sem kunna að vera óhefðbundnar í útliti getur jafnframt stuðlað að betri nýtingu matvæla og skapað eftirspurn eftir vörum sem annars gætu farið til spillis.
Þótt hver aðgerð virðist lítil getur samanlagður árangur skipt miklu máli.
Tengsl við EU FOODPACT verkefnið
Vitundarvakning og fræðsla um sjálfbærni tengjast beint markmiðum EU FOODPACT verkefnisins, sem vinnur að því að stuðla að sjálfbærari landbúnaðar- og matvælageira. Með því að auka þekkingu á matvælakerfum og umhverfislegum, félagslegum og efnahagslegum áhrifum þeirra vill verkefnið hvetja til ábyrgari viðhorfa og sjálfbærari neysluvenja. Aðgengilegt og áhugavert fræðsluefni er mikilvægur þáttur í þeirri vinnu.
Slík upplýsingamiðlun styður jafnframt við samstarf verkefnisaðila og auðveldar miðlun efnis milli landa og samfélaga. Með því að þýða og aðlaga fræðsluefni að tungumálum og aðstæðum þátttökulandanna er hægt að ná til fjölbreyttari hópa og gera sjálfbæra matvælaneyslu aðgengilegri og viðeigandi í ólíku menningarlegu og staðbundnu samhengi.
Markmiðið er ekki aðeins að auka vitund heldur einnig að hvetja til raunverulegra breytinga í daglegu lífi, atvinnustarfsemi og samfélaginu í heild.
Fylgstu með EU FOODPACT verkefninu, kynntu þér fræðsluefnið okkar og taktu þátt í að stuðla að sjálfbærari matvælakerfum – ein ákvörðun í einu!
Heimildir
- European Commission. Food waste. Food waste
- Harvest for Change. Transforming food systems from awareness to sustainable action. Transforming food systems from awareness to sustainable action