Hversu sjálfbært er matvælakerfi Evrópu?
Kynnumst evrópska mælaborðinu fyrir matvælakerfi
Matvælakerfi Evrópu: Hvers vegna skiptir vöktun máli?
Hversu sjálfbær eru matvælin sem við framleiðum og neytum? Eru matvælakerfi Evrópu að verða umhverfisvænni, efnahagslega öflugri og félagslega réttlátari? Og hvernig getum við mælt árangur í átt að þessum markmiðum?
Þessar spurningar verða sífellt mikilvægari eftir því sem Evrópa vinnur að umbreytingu matvælakerfa sinna til að bregðast við loftslagsbreytingum, hnignun umhverfisins, efnahagslegum þrýstingi og breyttum þörfum samfélagsins.
Matvælakerfi ná langt út fyrir hefðbundinn landbúnað. Þau ná yfir alla þá samtengdu starfsemi sem felst í framleiðslu, vinnslu, dreifingu og neyslu matvæla, auk meðhöndlunar matarsóunar og matvælaúrgangs. Starfsemi þeirra hefur áhrif á sjálfbærni umhverfisins, efnahagsþróun, atvinnu, lýðheilsu og félagslega velferð.
Til að skilja þessi flóknu tengsl þurfum við áreiðanleg gögn og heildstæða nálgun við vöktun og mat á þróun matvælakerfa.
Til að mæta þessari áskorun hefur Sameiginleg rannsóknarmiðstöð framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (Joint Research Centre – JRC), í samstarfi við ýmsar stofnanir framkvæmdastjórnarinnar og hagaðila, þróað evrópskt mælaborð fyrir matvælakerfi. Um er að ræða gagnvirkan upplýsingavettvang sem ætlað er að meta framfarir í átt að réttlátu, heilbrigðu og umhverfislega sjálfbæru matvælakerfi í Evrópu. Mælaborðið er aðgengilegt hér:
https://datam.jrc.ec.europa.eu/datam/mashup/EU_FOOD_SYSTEM_MONITORING/
Mælaborðið var fyrst kynnt í nóvember 2024 og býður upp á skipulagt kerfi til að fylgjast með sjálfbærni á öllum stigum aðfangakeðju matvæla. Það styður við stefnumótun sem byggir á gögnum, auðveldar greiningu nýrra áskorana og gerir notendum kleift að skoða þróun og mynstur í ólíkum þáttum matvælakerfisins.
Mikilvægt er að hafa í huga að mælaborðinu er ekki ætlað að gefa matvælakerfinu eina heildareinkunn fyrir sjálfbærni. Þess í stað sameinar það fjölbreytta mælikvarða sem gera notendum kleift að skoða flókið samspil ólíkra þátta og skilja hvernig mismunandi þættir sjálfbærni tengjast.
Vöktunarkerfið hefur haldið áfram að þróast. Í tækniskýrslu JRC frá árinu 2025 er gerð grein fyrir fyrstu umfangsmiklu uppfærslu þess, þar sem 15 nýjum mælikvörðum var bætt við og aukin áhersla lögð á sjálfbærniþætti sem áður höfðu fengið takmarkaða athygli.
Þessi þróun endurspeglar mikilvæga grundvallarhugmynd: Til að meta sjálfbærni matvælakerfa nægir ekki að horfa eingöngu til umhverfisáhrifa. Einnig þarf að taka tillit til fólksins, fyrirtækjanna og samfélaganna sem halda matvælakerfunum gangandi.
Hvað er mælt? Nánari útlistun á evrópska mælaborðinu
Einn helsti styrkleiki evrópska mælaborðsins er að það nálgast sjálfbærni út frá mörgum mismunandi sjónarhornum.
Vöktunarkerfið byggist á þremur þáttum sem tengjast sjálfbærni: umhverfislegri, efnahagslegri og félagslegri sjálfbærni. Þessu til viðbótar eru tveir málaflokkar sem snúa að stjórnun og viðnámsþrótti matvælakerfa og tengjast hverjum þætti fyrir sig.
Hver þáttur skiptist síðan niður í afmarkaða málaflokka og mælikvarða. Þannig verður til stigskipt kerfi sem tengir almenn sjálfbærnimarkmið við mælanlega þætti í starfsemi matvælakerfa.
Umhverfisleg sjálfbærni: Vistspor matvælaframleiðslu
Umhverfisþátturinn snýr að því álagi sem matvælakerfi leggja á náttúruauðlindir og vistkerfi.
Hann skiptist í fimm meginmálaflokka: loftslagsbreytingar; mengun og sýklalyf; sjálfbæra nýtingu auðlinda; líffræðilega fjölbreytni; og þverlæg umhverfismál.
Mælikvarðarnir ná yfir fjölbreytta þætti, svo sem losun gróðurhúsalofttegunda, notkun varnarefna, nýtingu lands og jarðvegs, vatnsauðlindir, lífríki vatna og sjávar, líffræðilega fjölbreytni, matvælatap, matarsóun og hringrásarhagkerfi.
Mælikvarðar á losun gróðurhúsalofttegunda gera til dæmis kleift að fylgjast með framlagi matvælaframleiðslu og tengdrar starfsemi til loftslagsbreytinga. Upplýsingar um notkun varnarefna varpa ljósi á efnafræðilegt álag sem tengist landbúnaðarframleiðslu, á meðan mælikvarðar á líffræðilega fjölbreytni hjálpa okkur að meta tengsl matvælaframleiðslu og verndunar vistkerfa.
Tveir mælikvarðar sem voru endurbættir við uppfærslu mælaborðsins árið 2025 eru sérstaklega áhugaverðir, en þeir snúa að matvælatapi og nýtingu hliðarafurða. Mælikvarðinn á matvælatap nær til taps sem verður við frumframleiðslu, meðal annars uppskeru sem verður eftir á ökrum og búfjár sem drepst áður en það fer til slátrunar. Mælikvarðinn á hliðarafurðir skoðar hins vegar þau efni og afurðir sem verða til við landbúnaðarframleiðslu og matvælavinnslu og hægt er að nýta, til dæmis í fóður eða aðrar vörur en matvæli. Þessir mælikvarðar sýna hvernig markviss gagnasöfnun getur varpað ljósi á tækifæri til að bæta auðlindanýtingu og draga úr umhverfisáhrifum á öllum stigum matvælakeðjunnar.
Efnahagsleg sjálfbærni: Geta matvælakerfi verið bæði arðbær og réttlát?
Umbætur í umhverfismálum eru nauðsynlegar, en matvælakerfi þurfa jafnframt að skapa raunhæf og sjálfbær efnahagsleg tækifæri fyrir fólk, fyrirtæki og stofnanir sem starfa innan þeirra.
Efnahagsþáttur mælaborðsins skiptist í tvo meginmálaflokka: réttláta efnahagslega afkomu innan virðiskeðju matvæla og þróun og flutninga. Þessir málaflokkar ná meðal annars til hagvaxtar, tekjuskiptingar, markaðsskipulags, verðlags, viðskipta, tækniþróunar, stafrænnar umbreytingar, flutninga og innviða.
Mælaborðið inniheldur mælikvarða á virðisauka á mismunandi stigum matvælakeðjunnar. Þannig geta notendur skoðað efnahagslegt framlag ólíkrar starfsemi, allt frá frumframleiðslu til vinnslu og dreifingar. Aðrir mælikvarðar beinast að tekjuskiptingu og launakjörum.
Við uppfærslu mælaborðsins árið 2025 var efnahagsþátturinn styrktur með nýjum mælikvörðum, meðal annars á meðallaun eftir atvinnugreinum, hlutfallslegar launatekjur starfsfólks og hlutdeild launatekna í verðmætasköpun.
Þessir mælikvarðar veita ólíka en samtengda sýn á það hvernig efnahagsleg verðmæti verða til og hvernig þeim er skipt innan matvælakerfisins. Til dæmis er hægt að skoða meðallaun samhliða virðisauka til að skilja betur efnahagslega stöðu starfsfólks á mismunandi stigum matvælakeðjunnar. Þetta skiptir sérstaklega máli þegar meta á efnahagslega sjálfbærni landbúnaðar, matvælavinnslu og dreifingar.
Efnahagsþátturinn tekur einnig til tækniþróunar og stafrænnar umbreytingar. Mælikvarðar skoða meðal annars stafræna hæfni starfsfólks í landbúnaði, skógrækt og sjávarútvegi, stafræna þróun matvælafyrirtækja og innleiðingu gervigreindar og nettengdrar tækni (Internet of Things – IoT). Þessir mælikvarðar endurspegla þá staðreynd að samkeppnishæfni og sjálfbærni matvælageirans mun í auknum mæli ráðast af getu fyrirtækja og starfsfólks til að tileinka sér nýja tækni og þróa viðeigandi hæfni.
Félagsleg sjálfbærni: Fólkið í greininni
Sjálfbært matvælakerfi þarf að stuðla að velferð fólks, félagslegri þátttöku og heilbrigðu mataræði.
Félagslegur þáttur mælaborðsins skiptist í þrjá meginmálaflokka: réttlát, inngildandi og siðferðilega ábyrg matvælakerfi; matvælaumhverfi; og næringu og heilsu. Þessir málaflokkar ná meðal annars til atvinnu, vinnuskilyrða, framboðs og aðgengis að matvælum, neysluumhverfis, mataræðis og heilsufars. Atvinnutengdir mælikvarðar veita upplýsingar um framlag matvælageirans til vinnumarkaðarins. Þeir ná einnig til kynbundins munar á atvinnuþátttöku og lausra starfa innan landbúnaðar- og matvælageirans. Þannig verður auðveldara að fylgjast með þróun vinnumarkaðsaðstæðna. Aðrir mælikvarðar beinast að næringu og matarvenjum. Mælaborðið inniheldur meðal annars upplýsingar um neyslu mismunandi fæðuflokka, saltneyslu, áfengisneyslu og neyslu heilkorns.
Þessar upplýsingar veita innsýn í mataræði fólks og tengsl þess við lýðheilsu og sjálfbæra matvælaneyslu.
Saman undirstrika félagslegu mælikvarðarnir mikilvægan þátt sjálfbærni matvælakerfa: Það nægir ekki að framleiða nægilegt magn matvæla. Matvælakerfi þurfa einnig að stuðla að heilbrigðu mataræði, réttlátum starfsskilyrðum og aðgengi allra að næringarríkum mat.
Mælaborðið er í stöðugri þróun: Hvað hefur breyst?
Þróun mælaborðsins endurspeglar áframhaldandi viðleitni til að byggja upp heildstæðara og betur samræmt kerfi til að fylgjast með sjálfbærni matvælakerfa. Samkvæmt tækniskýrslu JRC frá árinu 2025 fjölgaði mælikvörðum úr 75 í 90 við fyrstu umfangsmiklu uppfærslu kerfisins. Mælikvörðum fyrir umhverfislega sjálfbærni fjölgaði úr 45 í 47, mælikvörðum fyrir efnahagslega sjálfbærni úr 13 í 20 og mælikvörðum fyrir félagslega sjálfbærni úr 17 í 23.
Þótt umhverfismælikvarðar séu enn stærsti hluti kerfisins hefur uppfærslan aukið möguleika þess til að fylgjast með efnahagslegum og félagslegum þáttum sjálfbærni.
Uppfærslan bætti einnig yfirsýn yfir mismunandi stig matvælakeðjunnar, sérstaklega matvælavinnslu og neyslu. JRC bendir þó á að enn séu verulegar eyður í fyrirliggjandi upplýsingum. Gögn um frumframleiðslu í landbúnaði eru almennt aðgengilegri en upplýsingar um ýmsa þætti matvælavinnslu, dreifingar og neyslu. Þetta skýrist meðal annars af því að viðeigandi upplýsingar kunna að vera í höndum einkafyrirtækja eða að þeim sé ekki safnað með kerfisbundnum hætti. Í vöktunarkerfinu er því gert ráð fyrir svokölluðum bráðabirgðamælikvörðum (placeholder indicators). Þeir vísa til þátta sem taldir eru mikilvægir við mat á sjálfbærni en þar sem enn skortir viðeigandi gögn eða aðferðafræði til að framkvæma mælingar. Eftir því sem nýjar upplýsingar verða aðgengilegar er hægt að þróa þessa mælikvarða áfram og gera þá að fullgildum hluta kerfisins.
Mælaborðið er því meira en einfalt safn tölfræðilegra upplýsinga. Það er einnig rannsóknar- og þróunarverkfæri sem hjálpar okkur að greina hvað við vitum, hvar óvissa er enn til staðar og hvaða þætti þarf að rannsaka betur.
Meira en umhverfismál – stafræn hæfni og nýsköpun
Ein áhugaverðasta þróunin í vöktunarkerfinu er aukin áhersla á stafræna umbreytingu.
Innleiðing mælikvarða á stafræna hæfni, gervigreind, nettengda tækni og stafræna þróun fyrirtækja endurspeglar vaxandi mikilvægi tæknilegrar getu innan landbúnaðar- og matvælageirans. Til dæmis skoðar mælikvarðinn Digital Skills of the Labour Force in the Agricultural, Forestry or Fishing Sectors stafræna hæfni starfsfólks á aldrinum 16–74 ára í landbúnaði, skógrækt og sjávarútvegi. Mælikvarðinn Digital Intensity in Food Manufacturing Enterprises metur hins vegar hlutfall matvælaframleiðslufyrirtækja sem hafa náð háu eða mjög háu stigi stafrænnar þróunar. Aðrir mælikvarðar fylgjast með innleiðingu gervigreindar og samtengdrar tækni í matvælaframleiðslu.
Þessar mælingar skapa ný tækifæri til að rannsaka tengsl tækniþróunar, samkeppnishæfni fyrirtækja og umbreytingar í átt að sjálfbærni. Þær undirstrika jafnframt mikilvægi menntunar og þjálfunar. Innleiðing nýrrar tækni felst nefnilega í fleiru en að fjárfesta í tækjum og hugbúnaði. Starfsfólk og fyrirtæki þurfa að búa yfir þeirri þekkingu og hæfni sem nauðsynleg er til að skilja, innleiða og nýta stafrænar lausnir með árangursríkum hætti.
Nýtum gögn til að þróa sjálfbærari matvælakeðju
Evrópska mælaborðið fyrir matvælakerfi býður upp á fjölbreytta möguleika sem ná langt út fyrir stefnumótun og vísindarannsóknir. Með því að gera mælikvarða á sjálfbærni aðgengilega getur það einnig orðið verðmætt fræðslu- og kennslutæki fyrir nemendur, kennara, fagfólk og samfélagssamtök.
Þessir möguleikar tengjast sérstaklega vel markmiðum EU FOODPACT verkefnisins, sem stuðlar að þróun þekkingar og hæfni til að styðja við sjálfbærari matvælakerfi. Til að skilja sjálfbærni þarf fólk að geta túlkað upplýsingar, áttað sig á tengslum ólíkra þátta og metið mögulegar lausnir.
Mælaborðið býður upp á tækifæri til að efla fjölbreytta hæfni, meðal annars gagnalæsi, kerfishugsun, gagnrýna greiningu og ákvarðanatöku sem byggir á gögnum.
Kennarar geta til dæmis nýtt mælaborðið til að kynna nemendum raunverulegar áskoranir sem tengjast sjálfbærni og hvetja þá til að rannsaka hvernig umhverfislegir, efnahagslegir og félagslegir þættir hafa áhrif hver á annan. Fagfólk innan landbúnaðar- og matvælageirans getur skoðað mælikvarða sem tengjast eigin starfsemi, á meðan félagasamtök og aðrir samfélagsaðilar geta nýtt upplýsingarnar til að efla umræðu um staðbundin matvælakerfi og forgangsröðun í sjálfbærnimálum.
Umbreyting matvælakerfa Evrópu er flókið verkefni sem krefst umhverfislegrar ábyrgðar, efnahagslegs viðnámsþróttar, tæknilegrar nýsköpunar og félagslegrar þátttöku.
Evrópska mælaborðið fyrir matvælakerfi leggur mikilvægt af mörkum með því að sameina gögn og upplýsingar um mismunandi þætti sjálfbærni og öll stig matvælakeðjunnar. Áframhaldandi þróun þess minnir okkur jafnframt á að mat á sjálfbærni er sífellt í mótun. Nýir mælikvarðar, bættar rannsóknaraðferðir og áreiðanlegri gögn geta varpað ljósi á áskoranir og tækifæri sem áður var erfitt að greina.
Því að uppbygging sjálfbærari matvælakerfa hefst með betri skilningi á því hvernig þau virka – og hvernig við getum bætt þau.
Heimildir og frekara lesefni
European Commission — Joint Research Centre (2025). EU Food System Monitoring Framework: Fifteen New Indicators to Achieve a More Balanced Indicator Coverage. Publications Office of the European Union. DOI: 10.2760/5463127.
European Commission — Joint Research Centre (2024). EU Food System Monitoring Framework: From Concepts to Indicators. JRC137971.
European Commission — Joint Research Centre. EU Food System Monitoring Dashboard.
https://datam.jrc.ec.europa.eu/datam/mashup/EU_FOOD_SYSTEM_MONITORING/